Ferill 994. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1457 — 994. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um undanþágur frá fasteignaskatti.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvert er fasteignamat fasteigna sem eru undanþegnar fasteignaskatti skv. 1. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995?
2. Hver hefði verið upphæð álagðs fasteignaskatts á framangreindar fasteignir á yfirstandandi ári ef ekki hefði verið fyrir fyrrgreinda undanþágu?
Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum og stafliðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995.
Enn fremur óskast svar sundurliðað eftir nafni félaga í a-lið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.
Skriflegt svar óskast.